Fótbolti - Þá er það komið á hreint

23.jan.2006  08:32
Bo Henriksen skrifaði á laugardag undir samning þess efnis að spila með okkur í sumar. Samkomulagið var í raun klárt fyrir þó nokkru síðan en er nú undirritað og klárt. Bo mun dvelja hér nú í um það bil viku við æfingar með peyjunum á höfuðborgarsvæðinu en heldur svo erlendis þar sem hann mun æfa að öllum líkindum með liðum frá Englandi eða Skotlandi fram að æfingaferð, sem verður í mars.
Við bjóðum Bo velkominn í okkar raðir.
Andri Ólafs meiddist í leiknum gegn ÍR í síðustu viku, ekki er en vitað hversu alvarleg þau meiðsli eru en svo gæti þó farið að Andri yrði frá um þó nokkuð langan tíma, jafnvel einhverja mánuði. Um leið og ég veit eitthvað nánara þá læt ég það hér inn á síðuna.