Fótbolti - Arilíus ræstur út

22.jan.2006  01:42
Æfingar standa yfir hjá U-21 karla þessa helgina. Bjarni Hólm, Krummi og Andri áttu að vera þar við æfingar, en Andri er meiddur, óvíst hvað hann verður lengi frá eða hversu alvarleg meiðsli hans eru í raun, skýrist vonandi á mánudag, en eftir því sem ég veit best þá hafa hinir skæruliðarnir báðir látið sjá sig og í kvöld var Arilíus Marteinsson beðinn um að mæta á æfinguna á morgun, sem er náttúrulega hið besta mál og gaman að vita til þess að menn eru að fylgjast með Alla Matt í þessum mikla slag sem er í gangi um sæti í þessum hóp, hver veit nema að þetta veiti honum óvæntan innblástur til mun frekari afreka.