Handbolti - Leikir hjá 4.flokki karla um helgina

20.jan.2006  11:18

4. fl. karla stendur í stórræðum um helgina.

Í kvöld, föstudagskvöld, keppa þeir í 8 liða úrslitum SS bikarkeppni HSÍ gegn Stjörnunni. Stjarnan er “hærra skrifuð” á pappírnum en ÍBV ætlar sér sigur. Leikurinn hefst kl. 19:00 í gamla salnum.

Þá keppir 4. fl. líka í túrneringu á laugardag og sunnudag einnig í gamla salnum.

Á laugardaginn keppa þeir kl. 14:00 og kl. 17:00 og á sunnudag kl. 11:00 og kl. 13:00.

Allir að fjölmenna og styðja strákana því það hefur mjög mikið að segja.