4. fl. karla stendur í stórræðum um helgina.
Í kvöld, föstudagskvöld, keppa þeir í 8 liða úrslitum SS bikarkeppni HSÍ gegn Stjörnunni. Stjarnan er hærra skrifuð á pappírnum en ÍBV ætlar sér sigur. Leikurinn hefst kl. 19:00 í gamla salnum.
Þá keppir 4. fl. líka í túrneringu á laugardag og sunnudag einnig í gamla salnum.
Á laugardaginn keppa þeir kl. 14:00 og kl. 17:00 og á sunnudag kl. 11:00 og kl. 13:00.
Allir að fjölmenna og styðja strákana því það hefur mjög mikið að segja.