Handbolti - Stúlkurnar lágu einnig gegn Fram

16.jan.2006  01:26

Unglingaflokkur kvenna

Stúlkurnar í unglingaflokki léku einnig tvo leiki við Fram um helgina og biðu lægri hlut. En eins og í 2. flokki KK þá er Fram með einn ef ekki besta unglingaflokk landsins um þessar mundir.

Fyrri leikurinn fór fram á laugardag og sigraði Fram í þeim leik 22-36 eftir að staðan hafði verið 14-19 í hálfleik.

Markaskorarar ÍBV voru:

Sæunn 9, Ester 3, Nína Björk 3, Andrea 3, Hekla 2 og Elísa 2.

Heiða stóð vaktina í markinu allan leikinn og varði mjög vel.

Markaskorarar Fram voru:

Þórey 9, Elva 5, Hildigunnur 5, Sara 5, Jónína 4, Sigurbjörg 4, Hildur 2 og Stella 2.

Síðari leiknum á sunnudag töpuðu okkar stúlkur einnig en þá með 3 marka mun.