Handbolti - ÍBV-HK í dag kl. 19:15

11.jan.2006  01:11

Viðtal við Alfreð á Halli TV

Stelpurnar okkar mæta HK í dag kl. 19:15 og er full ástæða fyrir okkur Eyjamenn að fjölmenna á leikinn og styðja við bakið á þeim í fyrsta heimaleik ársins. HK er á sínu fyrsta ári í efstu deild og hefur staðið sig virkilega vel og hafa verið við það að vinna sterkustu lið landsins. Þannig að þetta verður virkilega erfiður leikur fyrir okkar stelpur.

Við verðum að vona að stelpurnar okkar mæti grimmar til leiks og að við stöndum vel við bakið á þeim í þessum erfiða leik.

Á Halli TV má sjá viðtal við Alfreð þjálfara í tilefni leiksins í dag gegn HK.