Fótbolti - Fannar í U-17 æfingahóp og Birkir og Egill hjá U-19

10.jan.2006  13:31

Verið var að boða á æfingar hjá æfingahópum fyrir U-17 og U-19 og hafa þeir félagar Birkir Hlynsson og Egill Jóhannsson verið valdir í æfingahóp U-19 hjá Guðna Kjartanssyni. Æft verður í Reykjaneshöll á laugardag en Fífunni á sunnudag. Fannar á að mæta á æfingar hjá Lúkasi Kostic þjálfara U-17 í Reykjaneshöll á laugardag og svo í Egilshöll á sunnudag. Við óskum peyjunum góðs gengis á æfingunum.