Fótbolti - Andri til reynslu hjá Álasund

10.jan.2006  20:18
Andri Ólafs. heldur til Noregs í fyrramálið þar sem hann mun verða til reynslu hjá Álasund fram á sunnudag. Þetta kom mjög fljótt upp á og var samþykkt að leyfa Andra fara til þeirra Álasundsmanna í nokkra daga. Þetta er nú kannski ekki sá tími sem leikmenn eru í hvað bestu formi en gaman verður að sjá hvernig peyjinn spjarar sig þarna út. Álasund er efnað lið með frábæran stuðning á bak við sig og samkvæmt mínum heimildum eru þeir að selja í kringum 8000 ársmiða á völlinn hjá sér, ef ekki meira - Við fylgjumst spennt með.