Handbolti - Eva Björk fer í barneignafrí

03.jan.2006  12:12

Eva Björk Hlöðversdóttir tilkynnti í gær leikmönnum að hún og Alfreð ættu von á barni í sumar. Hún hefur því lagt skóna á hilluna í bili og er það mikil blóðtaka fyrir lið ÍBV. Þar sem við vorum einnig að missa Nikolett Varga frá okkur að sama tilefni.

En vonbrigðunum fylgir einnig mikil gleði úr herbúðum ÍBV til þeirra hjónakorna með væntanlegan erfingja. Við viljum því nota tækifærið og óska þeim innilega til hamingju með þessi stórkostlegu tíðindi.

Við vonum að barnið velji síðan rétta liti á sinn keppnisbúning í framtíðinni.