Handbolti - Dósasöfnun í dag, þriðjudag

03.jan.2006  08:33

Á milli kl. 18-20:00

Handknattleiksdeild ÍBV mun þá fara í sína árlegu dósasöfnun og vonumst við eftir góðum undirtektum bæjarbúa. Ef þið verðið ekki heima á þessum tíma og hafið áhuga að gefa dósir, þá biðjum við ykkur vinsamlegast að skilja eftir poka fyrir utan.

Ef við eða þið náum ekki saman þennan dag, þá getið þið hringt í Valtý 698-2914 eða Viktor 896-4791 og við þá reynt að sækja til ykkar dósir.

Ef það er til áhugasamt fólk, ungir sem aldnir, sem hefur áhuga að aðstoða okkur í söfnunni þá hvetjum við það til að mæta. Ætlunin er að hittast kl. 18:00 við flokkunarstöð Vinnslustöðavarinnar í uppsjávarfiski fyrir neðan gúanóið.

Við viljum þakka ykkur stuðningin á árinu sem er að líða og vonumst eftir að eiga gott samstarf á komandi arum.

Handknattleiksdeild ÍBV