Handbolti - Mætum Stjörnunni í Garðabæ

14.des.2005  13:16

Í undanúrslitum SS-Bikarsins

Strákarnir okkar mæta Stjörnunni í undanúrslitum SS-Bikarsins og fer leikurinn fram í Garðabæ, 11 eða 12 febrúar.

Það er ljóst að róður okkar drengja verður mjög erfiður en að sjálfsögðu ætla þeir sér sigur og komast í Bikarúrslitaleikinn.

Með Stjörnunni leika tveir fyrverandi leikmenn ÍBV, þeir Tite og Roland. Þeim leiðist örugglega ekki sem og Stjörnufólki að fá okkur í heimsókn og telja okkur létta andstæðinga. Strákarnir okkar eru örugglega ekki sama sinnis en það mun allt koma í ljús um miðjan febrúar.

Í hinum undanúrslitaleiknum leika Haukar gegn Fram og fer leikurinn fram að Ásvöllum í Hafnafirði.