Fótbolti - Brynjar Þór til liðs við ÍBV

02.des.2005  20:40

Brynjar Þór Gestsson hefur haft félagsskipti yfir í ÍBV og mun leik með liðinu á Íslandsmótinu innanhúss sem fram fer um helgina. Brynjar sem hóf feril sinn hjá FH en lék síðan með Haukum en hefur síðustu 3 ár hefur þjálfað Huginn á Seyðisfirði. Á Seyðisfirði þjálfaði hann einmitt 3 fyrrum leikmenn ÍBV þá Birki Páls, Óla Gústa og Egil Þorsteins og svo lék Bjarni Hólm undir hans stjórn á Seyðisfirði áður en hann gekk til liðs við okkur.
Hann ætlaði að verða aðstoðarmaður Gústafs Adolfs Björnssonar hjá Haukum en hætti við það og lék sinn fyrsta leik fyrir ÍBV gegn Leikni í vikunni og var þá í framlínunni ásamt þeim Bjarna Rúnari og Arilíusi Marteinssyni (hér eftir jafnvel kallaður Alli Matt)
Við bjóðum Brynjar (hér eftir Binni) velkominn til liðs við ÍBV.

Myndin er fengin að láni frá Magga og félögum á fótbolti.net