Handbolti - Ætlar þú að mæta í kvöld?

25.nóv.2005  12:00

Miðarnir rjúka út.

Krókudílum boðið í VIP herbergi eftir leik.

Hvetjum alla til að drífa sig að fá miða

Búið að auka áhorfendastæði!!!!

Nú styttist í að flautað verði til leiks og hefur handknatleiksráð ÍBV ákveðið að auka sætaframboð og verður sett upp aðstaða sunnanmegin við völlinn. Miðarnir streyma út hjá VÍS á Skólaveginum og það fer að verða lítið eftir af þeim 600 miðum sem eru til sölu í sæti og bekki. Þannig að við hvetjum alla til að drífa sig til VÍS og fá sér miða. Nýjustu óstaðfestu tölur eru þær að nú séu að verða 500 miðar seldir og því einugis eftir 100 miðar í stúkuna. Miðar verða einnig seldir við innganginn.