Handbolti - William Hung mætir til Eyja

18.nóv.2005  11:16

Skemmtir Eyjamönnum á landsleiknum. Á Halli TV er komið efni með William Hung.

Hinn heimsþekkti skemmtikraftur William Hung mun sérstaklega koma til landsins til að skemmta Eyjamönnum á landsleik Íslands og Noregs föstudaginn 25. nóvember nk. William sló eftirminnilega í gegn í American Idol í fyrra fyrir sinn einstaka söng og dans. En það var ekki síst hans einlæga framkoma sem gerði hann heimsfrægan.

Mun hann koma til landsins um miðja næstu viku og mun þá taka þátt í verkefnum á vegum fjölmiðlafyrirtækisins 365 og er síðan væntanlegur á fimmtudagskvöldinu eða föstudagsmorgninum til Eyja. En handknattleiksdeild ÍBV og 365 hafa farið í samstarf um komu hans til landsins og erum við mjög ánægð með það samstarf og viljum koma á framfæri kæru þakklæti til 365 sem og Icelandair fyrir að gera komu hans til landsins mögulega.