Handbolti - ÍBV-KA í kvöld kl. 19:15

16.nóv.2005  09:29

Í kvöld koma KA menn í heimsókn og etja kappi við okkar drengi og hefst leikurinn kl. 19:15. Strákarnir okkar verða að sýna sínar bestu hliðar í kvöld og leggja norðan menn að velli til að laga okkar stöðu í deildinni. En við þurfum einnig að mæta og styðja við bakið á þeim og hjálpa þeim að innbyrða sigur á sterku liði KA.

Eyjamenn, sjáumst því öll í kvöld á leiknum og leggjum drengjunum okkar lið í þeirra baráttu. Við getum þá hugsað með okkur að við höfum lagt okkur fram til að leggja norðan menn að velli.