Fótbolti - Hrafn Davíðsson semur við ÍBV

31.okt.2005  16:41

Þá er það komið á hreint að Hrafn Davíðsson markvörður er búin að undirrita nýjan 2ja ára samning við félagið. Hrafn sem kom inn í liðið eftir að Birkir meiddist illa gegn FH-ingum í sumar og stóð sig með stakri prýði mun því vera áfram í herbúðum ÍBV til loka tímabilsins 2007.
Þetta eru gleðitíðindi því Hrafn sýndi í sumar að þar fer efnilegur markmaður sem gaman verður að fylgjast með i framtíðinni. Hann vann sér meðal annars sæti í hópi Íslenska U-21 landsliðsins.

Til hamingju Hrafn það verður gaman að hafa þig með okkur áfram.

Áfram ÍBV alltaf alls staðar