Handbolti - Komnar í efsta sætið

27.okt.2005  11:57
Eyjastúlkur lönduðu mikilvægum stigum í gærkveldi og komust með því í efsta sæti DHL-deildarinnar. Liðið hefur verið í miklum ham að undanförnu, síðast voru það Valsstúlkur og nú Íslandsmeistararnir sjálfir. Að sögn Alfreðs þjálfara ÍBV þá voru stelpurnar vel stemmdar fyrir leikinn og sýndi það sig þegar í leikinn var komið,"Ég fann það strax í byrjun leiks að okkur langaði meira í stiginn en Haukastelpunum "
Á Halla tíví má sjá viðtöl við Alfreð, Rögnu Karen og Guðmund Karlsson þjálfara Haukastúlkna. Nánari umfjöllun og myndir verða settar inn síðar en einnig má sjá umfjöllun um leikinn á Eyjafréttum.