Handbolti - Vinningskrá happdrættisins

29.sep.2005  09:48

Því miður sáu bæjarblöðin sér ekki fært að birta vinningskránna í happdrætti handknattleiksdeildar eins og við höfðum beðið þau og vonað að þau gerðu. Við vonum að þau hafi tök á því að birta hana í næstu viku til að bæjarbúar sem ekki hafa aðgang að netinu geti nálgast vinningskránna.

Þannig að ef þið sem lesið þetta heyrið í fólki sem er að leita eftir vinningunum þá biðjum við ykkur afsökunar á þessu með þeirri von að bæjarblöðin sjái sér fært að birta þetta í næstu viku.