Fótbolti - Anton Bjarna kallaður á æfingar hjá U-19

16.sep.2005  08:32
Miðjumaðurinn efnilegi AntonBjarnason hefur verið boðaður á landsliðsæfingar hjá U-19 um helgina en þar er hann partur af góðum hópi af efnilegum leikmönnum sem Guðni Kjartansson er að skoða með val í huga vegna þátttöku Íslands í Evrópukeppni U-19 ára landsliða í haust. Anton er eins og er staddur við æfingar með ÍBV-liðinu á höfuðborgarsvæðinu en liðið er þar á fullu við undirbúning fyrir leikinn gegn Fylki á morgun. Við óskum Antoni góðs gengis í komandi verkefnum.