Handbolti - Úrslit úr æfingamóti

13.sep.2005  16:37

Um s.l. helgi fór fram æfingamót í handknattleik hér í Eyjum. Leikið var í meistaraflokkum karla og kvenna. Mótið fór vel fram og fjölmargir komu í íþróttamiðstöðina til þess að kíkja á liðin og ekki síst þá leikmenn sem að hafa gengið til liðs við ÍBV fyrir komandi átök. Hægt er að skoða úrslit leikja hér, og einnig sjá hvaða leikmenn þóttu skara fram úr á mótinu.