Handbolti - Ungverskur hornamaður komin í ÍBV

16.ágú.2005  15:30

Til liðs við stelpurnar hefur gengið Renata Kári Horvath örfhenntur hornamður frá Ungverjalandi sem á að baki landsleiki með yngri landsliðum Ungverjalands og tók m.a. þátt í Heimsmeistaramóti stúlkna landsliða er fram fór í Makedóníu árið 2003. Þá hefur einnig leikið nokkra A landsleiki. Hún er 23 ára að aldri og lék á síðasta ári í Grikklandi.

Við væntum mikils af Renötu í vetur og vonum og trúum því að hún eigi eftir að styrkja liðið í þeirri erfiðu baráttu sem bíður okkar í vetur.

Við bjóðum hana velkomna til liðs við ÍBV.