Handbolti - Pétur Færseth er 55 ára í dag

16.ágú.2005  11:53

Einn ötulasti stjórnarmður kvennahandboltans og nú handboltans til margra ára, Pétur Færseth, er 55 ára í dag. Vilja samstarfsmenn hans sem og leikmenn og þjálfarar nota tækifærið og óska honum til hamingju með daginn og þakka honum fyrir samstarfið á undanförnum árum. Við vonum um leið að við megum njóta krafta Péturs sem lengst í boltanum þar sem þar er á ferð öflugur drengur sem hefur reynst ÍBV vel á undanförnum árum og þá ekki bara einungis handboltanum heldur fótboltanum einnig.

Pétur verður að heiman í dag og eru gjafir og blóm vinsamlegast afþökkuð. En handknattleiksdeildin tekur við fjárframlögum á sína reikninga.