Fótbolti - Framarar í heimsókn á sunnudag

07.júl.2005  16:01

ÍBV fær Framara í heimsókn n.k. sunnudagskvöld kl. 19:15. ÍBV steinlá gegn Fram í Laugardalnum í 1. umferð Landsbankadeildarinnar. Þeir hafa því harma að hefna strákarnir og ljóst að þeir munu leggja sig alla fram um að hirða 3 stig út úr þessum leik og eiga sætaskipti við Safamýrardrengina.

Páll Hjarðar verður klár í slaginn á sunnudag, en hann tók út 1 leiks bann gegn Njarðvíkingum í síðustu viku.

Sem fyrr óskum við eftir öflugum og góðum stuðningi Eyjamanna á Hásteinsvelli á sunnudag.

Dómari leiksins er Kristinn Jakobsson