Handbolti - Ragna Karen Sigurðardóttir í ÍBV

20.maí.2005  14:30

Ragna Karen Sigurðardóttir er leikið hefur með Gróttu/KR undanfarin ár hefur gengið til liðs við ÍBV. Hún getur leikið í báðum hornum sem og línu, þannig að hún mun gefa liðinu aukna breidd og styrkja það einnig til muna. Hún er 22 ára að aldri og hefur verið að stimpla sig vel inn í boltann hér á landi á undanförnum árum. Þá á hún að baki nokkra A-landsleiki en nokkuð er síðan síðasti leikur hennar var en við vonum að hún komist aftur á flugið og stimpli sig vel inn í landsliðið í vetur og þa´sem leikmaður ÍBV.

Við bjóðum Rögnu Karen velkomna til ÍBV og væntum mikils af henni á komandi vetri.