Ólafur Víðir Ólafsson sem leikið hefur með HK undanfarin ár hefur ákveðið að leika með ÍBV á komandi tímabili. Ólafur er 21 árs og er gríðarlega öflugur miðjumaður og hefur m.a. verið að komast inn í A landsliðið undir stjórn Viggóar. Við væntum mikils af Ólafi og bjóðum hann velkominn í ÍBV.
Hann á eflaust eftir að verða okkur mikill styrkur í deildinni á komandi vetri og stjórna spili liðsins af miklum skörungskap.