Handbolti - Eva og Guðbjörg í landsliðið

19.maí.2005  17:12

Stefán Arnarson, landsliðsþjálfari í handknattleik hefur valið tvo leikmenn frá ÍBV í landsliðshóp sem leikur á móti Hollendingum hér á landi 22.-24.maí. Þetta er þær Eva Björk Hlöðversdóttir, en hún á 25 ára afmæli í dag og Guðbjörg Guðmannsdóttir.

Þá mun Alfreð Finnsson, þjálfari meistarflokks kvenna, stjórna öðrum landsliðshóp sem að leikur við Færeyinga í Færeyjum 21.-22.maí. Þessi hópur er að mestu leiti skipaður yngri og óreyndum leikmönnum.