Handbolti - Mikil stemming fyrir hópferð

30.apr.2005  02:09
Aðeins kr. 6.000 - Allir krakkar sem mæta á leikinn fá ÍBV-tattú
Það er enn tækifæri fyrir okkur að skella okkur með strákunum í Hafnafjörðinn og leggja þeim lið í leiknum í dag.  Stuðningur okkar skiptir sköpum í þessu einvígi og því verðum við að vera tilbúin að leggja þeim lið í þeim leikjum sem framundan eru.
 
Nú er frábært tækifæri til að skella sé með strákunum í dag og verður flogið um kl. 13:00 í dag á Bakka og komið til um kl. 20:00.  Verðið í þessa ferð er ekki nema kr. 6.000 og er allt inni í því, flug, rúta og miði á leikinn.
 
Nú þegar ætla 30 manns að skella sér en það er en pláss fyrir þig að koma með og við hvetjum þig til að hringja í Magga Braga í síma 897-1110 og skrá þig í þessa ferð.
 
Þá hvetjum við Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu til að fjölmenna og styðja við bakið á drengjunum okkar.  Þess má geta að allir krakkar sem mæta á leikinn og styðja ÍBV fá ÍBV-tattú að gjöf.