Handbolti - Við verðum að styðja stelpurnar í kvöld

26.apr.2005  08:21
Stelpurnar okkar leika gegn Haukum í kvöld kl. 19:40.  Við verðum að fjölmenna á leikinn og hvetja þær til sigurs.  Við verðum að muna að við eigum séns að vinna tvöfallt í ár, en til þess að svo verði verða stelpurnar að leggja Hauka að velli. 
 
Það er oft gott að sitja í sófanum heima, en við verðum að muna að kraftaverkin gerast ekki þar.  Þau gerast með samstilltu átaki okkar Eyjamanna.  Er við stöndum saman fær ekkert okkar stöðvað.  En munum AÐ FYRST VERÐUM VIÐ AÐ BYRJA AÐ STANDA SAMAN.
 
Sjáumst öll í kvöld og munum að þetta eru stelpurnar OKKAR.