Hvetjum Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu til að mæta í kvöld á leik Fram og ÍBV sem fram fer kl. 19:15 í Framhúsinu. Leikurinn fer örugglega fram þar sem okkar strákar eru komnir upp á land. Nokkrir þeirra tóku Herjólf og aðrir flugu á Bakka til að leikurinn færi nú örugglega fram í kvöld. Það er full ástæða fyrir Eyjamenn að mæta og styðja vel við bakið á drengjunum því eflaust verður um skemmtilegan leik að ræða.
Við vonum að okkar drengir komi nú tilbúnir í þennan leik og verði grimmir í vörninni og skynsamir í sókninni.