Hér eru nokkrar mydnir af deildarmeisturum 5.flokks kvenna í handknattleik. En bæði A og B liðið unnu deildarkeppnina. Árangurinn í vetur hefur verið mjög góður og er geinilegt að Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari 5.flokks, er að skila mjög góðri vinnu með þessar stelpur. Verður gaman að fylgjast með þessum stelpum í framtíðinni, því þarna eru framtíðarleikmenn ÍBV á ferðinni.
Þess má geta við fengum þessar myndir sendar frá FH og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Heiða Ingólfsdóttir fyrirliði B liðsins tekur við verðlaunum
B-liðið ásamt Unni Sigmarsdóttur þjálfrar
Elísa Viðarsdóttir fyrirliða A liðsins tekur við verðlaunum
A liðið ásamt Unni Sigmarsdóttur þjálfara
Bæði liðin með verðlaunin ásamt Unni Sigmarsdóttur þjálfara.