Fótbolti - Gunnar Heiðar tekinn inn í landsliðshópinn

22.mar.2005  12:49
Ein breyting hefur verið gerð á íslenska landsliðshópnum fyrir leikina gegn Króatíu og Ítalíu.  Hjálmar Jónsson, leikmaður Gautaborgar í Svíþjóð, er meiddur og í hans stað hafa þeir Ásgeir og Logi valið Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem leikur með sænska liðinu Halmstad.  Gunnar Heiðar hefur leikið með öllum yngri landsliðunum, en á eftir að leika með A-liðinu.  Hann var reyndar í hópnum fyrir vináttulandsleikinn gegn Ítölum í ágúst á síðasta ári, en kom ekki við sögu.