FH kemur í heimsókn.
Stelpurnar okkar leika gegn FH í kvöld kl. 19:15 og er þessi leikur gríðarlega mikilvægur fyrir okkar stúlkur þar sem sigur þarf að vinnast til að við eigum möguleika á að vinna Deildarmeistaratitlinn. Eyjamenn þurfa því að styðja við bakið á stúlkunum og mæta í höllina og hvetja þær til sigurs. Sýnum þeim að við stöndum fast við bakið á þeim með því að fjölmenna.
Þess má geta að Bjarný dóttir Varða og Gunnu leikur með FH og verður gaman að fá hana og stöllur hennar í heimsókn í kvöld.