Handbolti - Unglingaflokkur í efsta sæti.

14.feb.2005  11:00

Unglingaflokkur kvenna lék tvo leiki núna um helgina og vannst sigur í báðum leikjunum, og er liðið nú í efsta sæti í 2.deild.  Á föstudag var leikið gegn Fram 2 og var leikið í Safamýrinni.  Stelpurnar voru að leika mjög vel á köflum, Fram komst inn í leikinn í seinni hálfleik en með baráttu og góð um leik vannst öruggur sigur 28-22.  Þær sem skoruðu voru: Ester Óskarsdóttir 8 mörk, Sonata Majauskaite 6, Sæunn Magnúsdóttir 5, Hildur Dögg Jónsdóttir og Hanna Carla Jóhannsdóttir 3, Hekla Hannesdóttir 2 og Sara Sigurðardóttir 1.  Birna Þórsdóttir stóð í markinu allan tímann og varði 15 skot.

Á laugardeginum var leikið gegn Fylki, leikurinn var frekar auðveldur og vannst hann örugglega með 11 marka sigri.  Stelpurnar komust í 6-0 og eftir það var bara spurning um hvað sigurinn yrði stór.  Liðið slakaði fullmikið á um miðjan fyrri hálfleik, líkt og í leiknum deginum áður.  En Fylkir náði ekki að nýta sér þetta og endaði leikurinn með góðum sigri 40-29.  Þessar skoruðu:  Ester Óskarsdóttir 12 mörk, Sonata Majauskaite 8, Hildur Dögg Jónsdóttir 6, Sæunn Magnúsdóttir og Hekla Hannesdóttir 5, Hanna Carla Jóhannsdóttir 3 og Sara Sigurðardóttir 1. Birna Þórsdóttir varði mjög vel, 14 skot þar af 2 víti.

Með þessum sigrum náðu stelpurnar í efsta sætið í deildinni, en tvö efstu sætin gefa sæti í úrslitakeppninni.