Strákarnir okkar hefja leik á nýju ári er þeir mæta Haukum í fyrsta leik sínum i efri deild DHL deildarinnar. Þarna sækja strákarnir okkar Íslandsmeistaranna heim, en að sjálfsögðu ælta þeir sér að leggja þá að velli í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fer fram að Ásvöllum.
Við óskum strákunum okkar góðs gengis og vonum að Eyjamenn mæti á leikinn og styðji við bakið á þeim.