Unglingaflokkurinn heldur áfram að standa sig vel og vann Fram-2 í kvöld 34-23 eftir að hafa leitt í hálfleik 13-12. Það er greinilegt að stelpurnar eru á réttri leið og verður gaman að fylgjast með þessum stelpum á næstu árum.
Stelpurnar eru að uppskera það sem þær hafa lagt á sig í vetur. Þetta er lítill en góður hópur og geta allar þessar stelpur náð langt á handboltavellinum ef þær hafa áhuga á því. Til að ná að lengra þurfa þessar stelpur að leggja á sig mikla vinnu við æfingar og við verðum að vona að þessar stelpur séu tilbúnar til þess. Þar sem ef þær gera það verða þær frábærir handboltaleikmenn innan nokkra ára.
Á morgun, laugardag, leika þær kl. 11:00 aftur gegn Fram.
Mörk ÍBV skoruðu:
Ester 9, Hekla 6, Anna María 5, Sæunn 4, Sonata 4, Hildur 2, Hanna Carla 2, Sædís 1 og Þóra Sif 1.
Birna stóð sig frábærlega í markinu og varði 18 skot þar af 3 víti.