Handbolti - 4. flokkur kvenna tapaði fyrir Fylki 13-22

16.jan.2005  23:50
Stelpurnar okkar í 4. flokki léku gegn Fylki á laugardaginn í Bikarkeppninni og biðu lægri hlut 13-22, eftir að staðan hafði verið 5-14 í hálfleik.  Það má segja að Fylkir hafi gert út um leikinn er þær náðu 9 marka forystu í fyrri hálfleik.  Eins og sést á þessum tölum voru stúlkurnar í Fylki ofjarlar okkar stúlkna.  Við verðum að vona að stelpurnar nái betri úrslitum í næstu leikjum.
 
 
 
 
 
 
Markaskorarar hjá ÍBV voru:
Anna María Halldórsdóttir 5 (sjá mynd hér til vinstri), Þóra Sif Kristinsdóttir 2 (sjá mynd hér til hægri), Sædís Magnúsdóttir 2, Nína Björk Gísladóttir 2 og Arna Björk Guðjónsdóttir 2.
 
 
Markaskorarar hjá Fylki voru:
Sunna María 8, Ásdís Rut 5, Vaka 4, Sunna 3 og Sigríður Edda 2.