Handbolti - Rúmenskur markvörður til liðs við okkur

07.júl.2004  10:50
- Florentina Grecu kemur frá Metz og á að baki nokkra landsleiki
Okkur hefur borist góður liðsauki þar sem rúmenskur markvörður að nafni Florenti na Grecu hefur gengið til liðs við liðið. Hún verður 22 ára síðar í mánuðinum og lék á síðasta ári í Frakklandi með stórliðinu Metz sem varð Franskur Meistari og Bikarmeistari þar í landi. Hún á að baki nokkra A landsleiki sem og unglinga landsleiki.