Yngri flokkar - Kristín Klara í lokahóp U19 hjá KSÍ

12.nóv.2026  11:42

Caroline VanSlambrouck, landsliðsþjálfari U19 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Kristínu Klöru Óskarsdóttur í lokahóp fyrir leiki í undanriðli EM í Króatíu 26. nóvember - 5. desember nk. Liðið æfir á Íslandi dagana 24.-25. nóvember áður en haldið er til Króatíu.

 

Leikir Íslands:

Laugardagur 28. nóvember kl. 12:00 Ísland - Króatía

Þriðjudagur 1. desember kl. 14:00 Ísland - Belgía

Föstudagur 4. desember kl. 11:00 Frakkland - Ísland

 

ÍBV óskar Kristínu Klöru innilega til hamingju með valið og góðs gengis!