Yngri flokkar - Magnús, Anton, Morgan, Sigurmundur, Fannar og Matthías á æfingar hjá HSÍ

16.okt.2026  13:27

Ágúst Þór Jóhannsson og Maksim Akbachev, landsliðsþjálfarar U21 karla hjá HSÍ, hafa valið Magnús Dag Jónatansson í æfingahóp fyrir komandi æfingavikur í nóvember.

 

Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon, landsliðsþjálfarar U19 karla hjá HSÍ, hafa valið Anton Frans Sigurðsson, Morgan Goða Garner og Sigurmund Gísla Unnarsson til æfinga fyrir komandi landsliðshelgi.

 

Ásbjörn Friðriksson og Ólafur Stefánsson, landsliðsþjálfarar U17 karla hjá HSÍ, hafa valið Fannar Inga Gunnarsson og Matthías Sigurðsson til æfinga fyrir komandi landsliðshelgi.

 

 

ÍBV óskar þeim innilega til hamingju með valið og góðs gengis!