Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur valið Milenu Mihaelu Patru í leikmannahóp til þátttöku í æfingamóti sem fram fer í Portúgal dagana 7.-15. september nk. Liðið æfir á Íslandi sunnudaginn 6. september áður en haldið er til Portúgal þann 7. september.
Leikir Íslands:
Þriðjudagur 8. september kl. 15:00 Wales - Ísland
Föstudagur 11. september kl. 15:00 Portúgal - Ísland
Mánudagur 14. september kl. 11:00 Ísland - Danmörk
ÍBV óskar Milenu innilega til hamingju með valið og góðs gengis!