Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U16 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Milenu Mihaela Patru í lokahóp sem tekur þátt í UEFA Development móti í Finnlandi dagana 21.-28. maí nk.
Leikir Íslands:
Föstudagur 22. maí kl. 17:30 Ísland - Ungverjaland
Sunnudagur 24. maí kl. 17:30 Ísland - Írland
Miðvikudagur 27. maí kl. 14:00 Ísland - Finnland
ÍBV óskar Milenu innilega til hamingju með valið og góðs gengis!