Yngri flokkar - Emil Gauta í lokahóp hjá KSÍ

22.apr.2026  11:11

Fer á UEFA Development mót í Finnlandi

 

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U16 karla hjá KSÍ, hefur valið Emil Gautason í leikmannahóp sem tekur þátt í UEFA Development móti sem fram fer í Finnlandi dagana 1.-8. maí nk. Liðið æfir á Íslandi fimmtudaginn 30. apríl áður en haldið er til Finnlands þann 1. maí þar sem þeir keppa 3 leiki.

Laugardagur 2. maí kl. 14:00 Ísland - Finnland

Mánudagur 4. maí kl. 13:00 Ísland - Lettland

Fimmtudagur 7. maí kl. 11:00 Ísland - Írland

 

ÍBV óskar Emil innilega til hamingju með valið og góðs gengis!