Yngri flokkar - Kristín Klara í lokahóp U17 hjá KSÍ

25.feb.2026  10:50

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Kristínu Klöru Óskarsdóttur í leikmannahóp sem tekur þátt í milliriðli EM sem fer fram í Serbíu dagana 12.-21. mars nk. Liðið keppir 3 leiki:

 

Laugardagur 14. mars kl. 11:00

Ísland - Frakkland

 

Þriðjudagur 16. mars kl. 11:00

Austurríki - Ísland

 

Föstudagur 19. mars kl. 12:00

Serbía - Ísland

 

ÍBV óskar Kristínu Klöru innilega til hamingju með valið og góðs gengis!