Yngri flokkar - Beta Rán, Bríet Ósk og María Sigrún í Hæfileikamótun KSÍ

10.feb.2026  15:40

Beta Rán Sigríðardóttir, Bríet Ósk Magnúsdóttir og María Sigrún Jónasdóttir hafa verið valdar til að taka þátt í Hæfileikamótun N1 og KSÍ fyrir stúlkur á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Æfingin fer fram í Miðgarði þriðjudaginn 17. febrúar nk. undir stjórn Aldísar Ylfu Heimisdóttur, þjálfara í Hæfileikamótun.