Eyjamaðurinn Viggó Valgeirsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild ÍBV, fréttirnar eru mikið gleðiefni enda var Viggó meðal bestu ungu leikmanna Lengjudeildarinnar 2024.
Viggó er 18 ára miðjumaður sem hefur leikið með ÍBV upp alla yngri flokkana, hann er góður félagsmaður og tryggði sér sæti í byrjunarliði ÍBV þegar leið á tímabilið. Fyrsti leikur hans í byrjunarliði ÍBV í deildarkeppni var gegn Fram undir lok tímabilsins 2023 á Hásteinsvelli í Bestu deildinni en fyrr á því tímabili hafði hann komið inn á sem varamaður gegn FH í Kaplakrika.
Fyrstu leikir Viggós í meistaraflokki komu með KFS er hann lék 12 leiki í bakvarðarstöðunni hjá liðinu 2022 þegar liðið endaði í 6. sæti 3. deildar karla.
Í sumar lék Viggó í 18 af 22 leikjum ÍBV í Lengjudeildinni, hann lék í 10 af 11 sigurleikjum liðsins í deildinni, en 11 sigurleikir auk sex jafntefla nægðu liðinu til að vinna deildina. Viggó fékk Fréttabikarinn í lok tímabils en þann bikar hlýtur efnilegasti leikmaður ÍBV ár hvert.
Knattspyrnuráð fagnar því að Viggó vilji vera áfram hjá ÍBV og vonar að hann haldi áfram að vinna sér inn stærra og stærra hlutverk í liðinu á hverju tímabili.