Yngri flokkar - 4. flokkur karla í handknattleik í skemmtiferð um suðurland

06.júl.2021  14:28

og enduðu á lokahófi á Hótel Örk

Strákarnir í 4. flokk karla í handknattleik fóru í skemmtiferð um suðurlandið í síðustu viku, en ferðin endaði svo á lokahófi flokksins. Upphaflega stóð til að flokkurinn færi erlendis en vegna faraldursins þá var það ekki hægt og úr varð frábær innanlandsferð þar sem strákarnir skemmtu sér í allskyns þrautum og leikjum, fóru m.a. í lazertag, fótbolta golf, pílumót, fótboltamót og blakmót.

Hópurinn gisti á Hótel Örk og þar fór lokahófið fram síðasta kvöldið, eftirtaldir fengu viðurkenningu:

4. flokkur karla 

Yngra ár:

ÍBV-ari: Birkir Björnsson

Framfarir: Jason Stefánsson

Bestur: Egill Oddgeir Stefánsson

 

Eldra ár:

ÍBV-ari: Kristján Ingi Kjartansson

Framfarir: Ísak Huginn Héðinsson

Bestur: Ívar Bessi Viðarsson