Sumarlok félagsins voru haldin sl. laugardag eftir flott sumar þar sem meistaraflokkarnir okkar enduðu báðir um miðja deild. Veittar voru viðurkenningar til elstu flokka félagsins og nokkrir starfsmenn heiðraðir.
Meistaraflokkur kvenna:
Besti leikmaðurinn - Cloe Lacasse
Mikilvægasti leikmaðurinn - Adrienne Jordan
Markahæsti leikmaðurinn - Cloe Lacasse
Fréttabikarinn / efnilegasti leikmaðurinn - Clara Sigurðardóttir
Meistaraflokkur karla:
Besti leikmaðurinn - David Atkinsson
Mikilvægasti leikmaðurinn - Halldór Páll Geirsson
Markahæsti leikmaðurinn - Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Fréttabikarinn / efnilegasti leikmaðurinn - Sigurður Arnar Magnússon
2. flokkur kvenna:
Besti leikmaðurinn - Birgitta Sól Vilbergsdóttir
2. flokkur karla:
Besti leikmaðurinn - Eyþór Daði Kjartansson
ÍBV - ari - Guðlaugur Gísli Guðmundsson
Markahæsti leikmaðurinn - Daníel Már Sigmarsson
Mestu framfarir - Daníel Scheving
Ian Jeffs, Kristján Guðmundsson og Jón Ólafur Daníelsson létu af störfum sem þjálfarar meistaraflokka ÍBV.
Sunna Sigurjónsdóttir lætur af störfum sem framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar karla.
Páll Almarsson lætur af störfum sem formaður knattspyrnudeildar karla.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson var heiðraður en hann hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir glæstan fótboltaferil.
ÍBV íþróttafélag þakkar ofangreindum fyrir mikil og óeigingjörn störf fyrir félagið okkar og óskar þeim velfarnaðar í öllu því sem þau taka sér fyrir hendur.