Tekur þátt í æfingaleikjum gegn Færeyjum
Dean Martin, landsliðsþjálfari U-15 karla, hefur valið Eyþór Orra Ómarsson til þátttöku í leiki gegn Færeyjum dagana 27. og 29. október, en þetta er fyrsti landsleikur Íslands í þessum aldursflokki í töluvert langan tíma.
Föstudaginn 27. október verður leikið í Egilshöllinni og hefst leikurinn kl. 20:00. Sunnudaginn 29. október verður leikið í Akraneshöllinni og hefst leikurinn kl. 14:00.
ÍBV óskar Eyþóri Orra innilega til hamingju með valið.