Yngri flokkar - Þjálfarar ÍBV íþróttafélags

03.des.2014  11:29
Í vetur sjá 16 þjálfarar um æfingar yngri flokka félagsins og er gaman að segja frá því að í hópnum eru 8 íþróttafræðingar og tveir grunnskólakennarar. Tveir af yngri flokka þjálfurum félagsins hafa lokið UEFA A gráðu og tveir UEFA B. Nær allir þjálfarar félagsins hafa sótt þjálfara- og/eða dómaranámskeið á vegum sérsambandanna.