Í dag gekk kvennalið ÍBV frá samningi við Hollensku landsliðskonuna Kim Dolstra sem leikur með Hollenska liðinu Aod Haag. Kim sem nú hefur fest sig í sessi í landsliðshópi Hollands er miðvörður og kemur til ÍBV strax í næstu viku. Kim var árið 2009 kosin leikmaður ársins í Hollandi.
Eyjakonur eru því komnar með fullskipaðan leikmannahóp fyrir komandi tímabil og eru leikmenn í óða önn að tínast til eyja áður en Lengjubikarinn hefst í lok febrúar.